Búið er að opna fyrir umsóknir um matjurtagarða í Mosfellsbæ.
Matjurtagarðar bæjarins verða staðsettir austan við Varmárskóla þar sem gömlu skólagarðarnir hafa verið. Aðkoma að görðunum verður að norðanverðu frá tjaldsvæðinu við eldri deild Varmárskóla. Aðgengi að vatni og kaffiskúr verður við garðana.
- Leiguverð fyrir matjurtagarða er 2.500 kr. fyrir 50 fm garð
- Tekið er við umsóknum á tjonustustod[hja]mos.is
- Garðarnir verða tilbúnir til notkunar föstudaginn 18. maí n.k.
Einnig eiga íbúar í Mosfellsbæ möguleika á að fá leigða matjurtagarða á vegum Reykjavíkurborgar í Skammadal. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar sér um útleiguna og geta áhugasamir sett sig í samband við Þóru Jónasdóttur umsjónarmann matjurtagarða í Reykjavík í síma 411-1111 eða í netfangið matjurtagardar[hja]reykjavik.is og látið skrá sig á lista með ósk um garð. Taka þarf fram að viðkomandi sé íbúi í Mosfellsbæ.
Tengt efni
Haustblómin mætt
Viðhald á gönguleiðum í sumar
Opið fyrir umsóknir um matjurtagarða sumarið 2024
Opið er fyrir umsóknir um matjurtagarða í Mosfellsbæ.