Búið er að opna fyrir umsóknir um matjurtagarða í Mosfellsbæ.
Matjurtagarðar bæjarins verða sem fyrr staðsettir í Skarhólamýri, á sama stað og undanfarin ár. Aðgengi að vatni verður við garðana. Leiguverð fyrir matjurtagarða er óbreytt, eða 2.500 kr. fyrir 50 fm garð og 5.000 kr. fyrir 100 fm garð. Garðar verða tilbúnir til notkunar föstudaginn 20. maí n.k.
Vegna uppbyggingar á lóðum við Desjamýri verða matjurtagarðar næst götunni ekki í boði í ár. Þeim sem hafa haft garða á þessu svæði stendur til boða að fá aðra garða á svæðinu.
Þeir sem óska eftir því að leigja áfram sama garð og í fyrra eru beðnir um að staðfesta leiguna með greiðslu fyrir 10. maí n.k. Eftir þann tíma verða allir garðar leigðir út til Mosfellinga skv. biðlista.
Þjónustuver Mosfellsbæjar, 2. hæð, Þverholti 2, annast eins og áður móttöku umsókna og tekur við greiðslum. Hægt er að hafa samband við þjónustuver Mosfellsbæjar í síma 525-6700 eða í gegnum netfangið mos@mos.is með ósk um að komast á biðlista um matjurtagarð.
Ef þörf er á verður mögulegt að úthluta matjurtagörðum austan Varmárskóla eins og áður.
Einnig eiga íbúar í Mosfellsbæ möguleika á að fá leigða matjurtagarða á vegum Reykjavíkurborgar í Skammadal. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar sér um útleiguna og geta áhugasamir sett sig í samband við Þóru Jónsdóttur umsjónarmann matjurtagarða í Reykjavík í síma 411-1111, eða í netfangið matjurtagardar@reykjavik.is og látið skrá sig á lista með ósk um garð. Taka þarf fram að viðkomandi sé íbúi í Mosfellsbæ.
Tengt efni
Haustblómin mætt
Viðhald á gönguleiðum í sumar
Opið fyrir umsóknir um matjurtagarða sumarið 2024
Opið er fyrir umsóknir um matjurtagarða í Mosfellsbæ.