Okkar Mosó er samráðsverkefni íbúa og bæjarins um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til smærri nýframkvæmda- og viðhaldsverkefna í Mosfellsbæ.
Íbúar Mosfellsbæjar eru hvattir til að senda inn fjölbreyttar hugmyndir að góðum verkefnum í bænum. Hugmyndirnar geta tengst því aðgera Mosfellsbæ betri, skapa eitthvað nýtt, efla hreyfingu, hafa jákvæð áhrif á umhverfi og íbúa til útivistar og samveru, bættrar lýðheilsu eðaaðstöðu til leikja- og skemmtunar. Gert er ráð fyrir að verja allt að 35 milljónum króna í þau verkefni sem fá flest atkvæði.
Hugmyndavefurinn er opinn 11. mars til 6. apríl 2021.
Til að komast áfram í kosningu þurfa hugmyndirnar sem sendar eru inn að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Nýtast hverfi eða íbúum bæjarins í heild
- Vera til fjárfestinga en ekki rekstrar
- Auðveldar í framkvæmd
- Varða umhverfi á bæjarlandi en ekki á landi í einkaeigu
- Falla að skipulagi og stefnu Mosfellsbæjar
- Vera í verkahring sveitarfélagsins
- Kostnaður hugmyndar taki ekki stóran hluta af fjármagni verkefnisins
Hver hugmynd þarf að vera vel útskýrð og með nákvæma staðsetningu. Það auðveldar fólki að meta hugmyndina og hvort þau vilja gefa henni atkvæði. Athugið að starfsmenn Mosfellsbæjar geta óskað eftir nánari skýringum fyrir hverja hugmynd.
Hugmyndir að framkvæmdum á íþrótta-, sundlaugar- og skólasvæðum þarf að skoða sérstaklega.
Kosið verður um bestu hugmyndirnar dagana 31. maí til 6. júní.
Tengt efni
Vinna við nýja körfuboltavelli á áætlun
Uppákomur í jólagarðinum næstu sunnudaga
Jólagarðurinn við Hlégarð hefur slegið í gegn á aðventunni. Verkefnið var kosið í Okkar Mosó 2021.
Ljósin í jólagarðinum við Hlégarð tendruð
„Jólaskreyttur garður á Hlégarðstúni þar sem fólk gerir sér ferð til að heimsækja staðinn og eiga góðar stundir“.