Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar hafa til 22. desember færi á að kynna sér drög að lýðheilsu- og forvarnarstefnu Mosfellsbæjar og koma sínum sjónarmiður og ábendingum á framfæri.
Drög að lýðheilsu- og forvarnarstefnu Mosfellsbæjar hafa verið lögð fram í samráðsgátt á Betra Íslandi.
Til 22. desember gefst íbúum og öðrum hagsmunaaðilum færi á að kynna sér það efni sem nú liggur fyrir í stefnumótunarferlinu og koma sínum sjónarmiðum og ábendingum á framfæri.
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar samþykkti í júní 2019 að hefja vinnu við stefnumótun í lýðheilsu og forvörnum fyrir Mosfellsbæ. Stefnunni er ætlað að skerpa á markmiðum, leiðum og sérstöðu Mosfellsbæjar sem heilsueflandi samfélags.
Mosfellsbær hefur frá árinu 2012 verið leiðandi í hópi sveitafélaga sem láta sig heilsueflingu íbúa og starfsfólks varða. Mikilvægt atriði í þeirri vegferð er að samþætta sjónarmið lýðheilsu og forvarna inn í alla ákvarðanatöku og útfærslu verkefna bæjarins.
Tengt efni
Íþróttavika Evrópu 23. - 30. september 2022
Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin 23. – 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum.
Heilsa og hugur fyrir 60+ byrjar 12. september 2022
Mánudaginn 12. september byrjar námskeiðið Heilsa og hugur fyrir íbúa Mosfellsbæjar sem eru 60 ára og eldri.
Gleði, hreyfing og samvera á námskeiði hjá félagsstarfi aldraðra
Félagsstarf aldraðra býður upp á 6 vikna vor/sumar fjör sem stendur frá 25. apríl til 3. júní (3 vikur inni og 3 vikur úti).