Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
26. júní 2025

Mos­fells­bær fagn­ar opn­un nýs og glæsi­legs leik­skóla í Helga­fellslandi sem feng­ið hef­ur nafn­ið Sum­ar­hús. Opn­un leik­skól­ans er stór og mik­il­væg­ur áfangi í bættri þjón­ustu við börn og fjöl­skyld­ur í sveit­ar­fé­lag­inu. Leik­skól­inn er sér­stak­lega hann­að­ur og byggð­ur með þarf­ir barna og starfs­fólks að leið­ar­ljósi.

„Þessi dag­ur mark­ar mik­il­væg tíma­mót fyr­ir Mos­fells­bæ, af­hend­ing og vígsla nýs og glæsi­legs leik­skóla. Við erum ein­stak­lega ánægð með sam­vinnu við verk­taka­fyr­ir­tæk­ið Al­efli sem hef­ur stað­ið við all­ar tíma­setn­ing­ar og skil­ar af sér glæsi­legu verki.

Með opn­un Sum­ar­húsa er stig­ið stórt og mik­il­vægt skref í að fjölga leik­skóla­rým­um og efla þjón­ustu við yngstu íbúa bæj­ar­ins og halda þann­ig áfram að gefa börn­um allt frá 12 mán­aða aldri kost á leik­skóla­plássi“ seg­ir Regína Ás­valds­dótt­ir bæj­ar­stjóri.

150 leik­skóla­pláss í Sum­ar­hús­um

Leik­skól­inn Sum­ar­hús er fyr­ir börn á aldr­in­um 1–5 ára og rúm­ar 150 börn. Frá hausti munu um 60 börn ásamt starfs­fólki frá leik­skól­an­um Hlað­hömr­um dvelja þar tíma­bund­ið á með­an unn­ið er að fram­tíð­ar­lausn fyr­ir Hlað­hamra sem varð að loka í vet­ur vegna skemmda á hús­næði.

Leik­skóla­stjóri Sum­ar­húsa er Berg­lind Grét­ars­dótt­ir. Starfs­menn verða um 45 tals­ins í 40 stöðu­gild­um og vel hef­ur geng­ið að ráða í helstu lyk­il­stöð­ur í leik­skól­an­um.

Heilsu­stefn­an verð­ur leið­ar­ljós skóla­starfs­ins

Starf Sum­ar­húsa bygg­ir á Heilsu­stefn­unni, þar sem áhersla er lögð á nær­ingu, hreyf­ingu og sköp­un í leik.

„Við hlökk­um mik­ið til að taka á móti þeim börn­um sem hefja skóla­göngu sína í Sum­ar­hús­um að loknu sum­ar­leyfi. Jafn­framt verð­ur spenn­andi að sjá starf­ið þró­ast og dafna og leik­skól­ann verða einn af mátt­ar­stólp­un­um í skóla­sam­fé­lagi Mos­fells­bæj­ar“ seg­ir Berg­lind Grét­ars­dótt­ir leik­skóla­stjóri í Sum­ar­hús­um.

Glæsi­legt nýtt hús­næði Sum­ar­húsa

Sum­ar­hús er í nýju og sér­hönn­uðu hús­næði í Helga­fellslandi sem er í senn bjart, nú­tíma­legt og vist­vænt. Hug­mynda­fræð­in að baki hönn­un hús­næð­is­ins er að leik­skól­inn verði hag­kvæm­ur í rekstri, að hljóð­vist, lýs­ing og loft­gæði verði sem best og bygg­ing­in í heild sinni falli þann­ig að um­hverfi sínu að auð­velt sé að tengja sam­an skólast­arf, nátt­úru, um­hverfi og sam­fé­lag.

Kanon arki­tekt­ar sáu um hönn­un húss­ins og var vinn­an leidd af arki­tekt­un­um Hall­dóru Krist­ínu Braga­dótt­ur og Mo­fell­ingn­um Þor­keli Magnús­syni. Verk­fræði­hönn­un var í hönd­um Tekn­ik ehf. og VSÓ ráð­gjöf sá um bygg­inga­stjórn­un. Mos­fellska verk­taka­fyr­ir­tæk­ið Al­efli ehf. sá um bygg­ingu leik­skól­ans og gekk vinn­an það vel að verktak­inn skil­aði hús­næð­inu af sér fyr­ir áætluð verklok.


Á efstu mynd eru frá vinstri: Berg­lind Grét­ars­dótt­ir leik­skóla­stjóri Sum­ar­húsa, Regína Ás­valds­dótt­ir bæj­ar­stjóri, Magnús Þór Magnús­son fram­kvæmda­stjóri Al­efl­is,
Aldís Stef­áns­dótt­ir bæj­ar­full­trúi og formað­ur fræðslu- og frí­stunda­ráðs, og Svein­björg Dav­íðs­dótt­ir leik­skóla­stjóri Hlað­hamra.

Ljós­mynd­ari: Helga Dögg Reyn­is­dótt­ir

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00