Fyrirhugað er að ráðast í framkvæmdir við nýja stoppistöð Strætó bs. við Vesturlandsveg sumarið 2016. Samhliða því verður lokað fyrir allan akstur um Aðaltún og aðkoma akandi verður frá þeim tíma að Hlíðartúnshverfi einungis um Skarhólabraut.
Allar frekari upplýsingar um framkvæmdina eru veittar á umhverfissviði Mosfellsbæjar í síma 525-6700.