Kynning á verkefnislýsingu deiliskipulags skv. 40. gr. skipulagslaga. Um er að ræða áform um að setja allt að 8 færanlegar kennslustofur á lóð næst Baugshlíð sunnan Þrastarhöfða. Ábendingar varðandi verkefnislýsinguna berist fyrir 19. apríl.
Mosfellsbær auglýsir hérmeð til kynningar verkefnislýsingu skv. 40. gr. skipulagslaga fyrir gerð deiliskipulags fyrir nýja skólalóð sunnan Þrastarhöfða. Áformað er að setja þar niður allt að 8 færanlegar kennslustofur á um 8.000 m2 lóð. Markmið með deiliskipulaginu er að leysa úr úr tímabundum vanda í húsnæðismálum Lágafellsskóla, en gert er ráð fyrir að þetta bráðabirgðahúsnæði muni víkja síðar þegar þess verður ekki lengur þörf.
Í verkefnislýsingunni kemur lögum samkvæmt fram “hvaða áherslur sveitarstjórn (hefur) við deiliskipulagsgerðina og upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli, s.s. um kynningu og samráð við skipulagsgerðina gagnvart íbúum og öðrum hagsmunaaðilum.”
Athugasemdum og ábendingum varðandi verkefnislýsinguna má skila til þjónustuversins eða undirritaðs og er æskilegt að þær berist fyrir 19. apríl n.k.
skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ