Það verður líf og fjör í heilsu- og íþróttabænum Mosfellsbæ næstu daga þegar Mosöld, Öldungamót BLÍ í blaki fer hér fram. Vel á annað þúsund keppendur mæta til leiks og verður leikið á 15 völlum á Varmá. Mótið hefst kl. 8:30 í fyrramálið og lýkur seinni partinn á laugardaginn.
Mynd: Vaskur hópur að undirbúa sölu á merktum landsliðstreyjum.