Starfsfólk þjónustustöðvar Mosfellsbæjar munu, eins og undanfarin ár, aðstoða íbúa við að losa sig við jólatré sín eftir jólahátíðina.
Starfsfólk þjónustustöðvarinnar ekur um bæinn og hirðir þau jólatré sem sett hafa verið út fyrir lóðarmörk frá miðvikudeginum 7. janúar til föstudagsins 9. janúar.
Íbúar geta einnig losað sig við jólatré á endurvinnslustöð Sorpu bs. við Blíðubakka án þess að greiða fyrir.