Karatesamband Íslands hefur útnefnt Krisján Helga Carrasco, sem æfir karate hjá karatedeild Aftureldingar, karatemann ársins 2010. Hann er landsliðsmaður í karate og keppir í báðum greinum karate; Kata og Kumite.
Kristján Helgi hefur náð góðum árangri á árinu bæði innanlands og utan en hann hefur keppt bæði í unglingaflokkum og fullorðinsflokkum. Helsti árangur Kristjáns á árinu er bikarmeistaratitill fullorðinna og Grand Prix meistari unglinga, Íslandsmeistari í Kata unglinga ásamt þremur verðlaunum á erlendum mótum.
Aðalheiður Rósa Harðardóttir sem æfir með Karatefélagi Akraness var útnefnd karatekona ársins 2010.
Tengt efni
Samstarfssamningar Mosfellsbæjar við íþrótta- og tómstundafélög endurnýjaðir
Samningarnir gilda frá árinu 2025 til loka ársins 2027.
Sjálfboðaliði ársins 2024
Íslandsmót í Cyclocross í Mosfellsbæ