Það snjóaði ekki eins mikið á höfuðborgarsvæðinu í nótt eins og búist var við þar sem hiti var nokkuð yfir frostmarki.
Þess vegna eru flestar stofnæðar og tengibrautir færar og einnig fjölmargar íbúðagötur. Unnið verður fram eftir morgni að ryðja íbúðagötur sem eru ekki færar og á það helst við í efri byggðum og jafnvel víða.
Þau sem ætla á bílum sínum eru beðin um að meta búnað bílsins og færðina þar sem þau búa og alls ekki að ana af stað ef ófærð er mikil. Strætó stefnir á að hefja akstur upp úr kl. 09:00.
Tengt efni
Vetrarþjónusta
Aukin og bætt vetrarþjónusta
Þann 8. október undirritaði Regína Ásvaldsdóttir fyrir hönd Mosfellsbæjar samninga um snjómokstur við tvo verktaka.
Snjómokstur í dag mánudaginn 5. febrúar 2024
Í gær voru öll tiltæk tæki við snjómokstur í öllum hverfum bæjarins.