Hin árlega menningarvika og listasýning leikskólabarna í Mosfellsbæ verður dagana 24. apríl – 8. maí n.k. á torginu í Kjarna.
Leikskólabörn Mosfellsbæjar hafa verið að vinna listaverk sem verða til sýnis á torginu þessa daga. Sýningin gefur innsýn í það frábæra og fjölbreytta starf sem unnið er í leikskólum bæjarins.