Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
13. apríl 2012

Hin ár­lega menn­ing­ar­vika leik­skóla Mos­fells­bæj­ar verð­ur dag­ana 13. – 18. apríl n.k. í Kjarna.

Öll börn í leik­skól­um Mos­fells­bæj­ar hafa ver­ið að vinna lista­verk sem verða til sýn­is í kjarn­an­um. Sýn­ing­in gef­ur inn­sýn í það frá­bæra, fjöl­breytta og metn­að­ar­fulla starf sem unn­ið er í leik­skól­um bæj­ar­ins. Börn af leik­skól­um bæj­ar­ins mæta í Kjarn­ann, skoða sýn­ing­una og syngja fyr­ir gesti og gang­andi.

Við hvetj­um bæj­ar­búa til að mæta í Kjarna vik­una 13. – 18. apríl og skoða lista­sýn­ing­una og hlýða á börn­in syngja.

Menn­ing­ar­vik­an er að þessu sinni hald­in í sam­vinnu við af­mæl­is­nefnd vegna 25 ára af­mæl­is Mos­fells­bæj­ar.

Dagskrá:

  • 13 . apríl: Sýn­ing­in sett upp
  • 16. apríl: Ár­gang­ar 2009 og 2008 mæta og syngja kl. 10:40
  • 17. apríl: Ár­gang­ur 2007 mæt­ir og syng­ur kl. 10:40
  • 18. apríl: Ár­gang­ur 2006 mæt­ir og syng­ur kl. 10:40

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00