Hin árlega menningarvika leikskóla Mosfellsbæjar verður haldin dagana 13. – 17. apríl í Kjarna.
Leikskólabörn Mosfellsbæjar hafa verið að vinna listaverk sem verða til sýnis á torginu. Sýningin gefur innsýn í það frábæra og fjölbreytta starf sem unnið er í leikskólum bæjarins.
Börnin munu syngja fyrir gesti og gangandi við undirleik Helga Einarssonar á eftirfarandi dögum kl. 10:30.
- 14. apríl – Árgangar 2011
- 15. apríl – Árgangur 2010
- 16. apríl – Árgangur 2009
Við hvetjum bæjarbúa til að mæta í Kjarna, skoða listasýningu og hlýða á börnin syngja.