Uppfært 20. júní kl. 9:30 – Framkvæmdum frestað vegna rigningar.
Fimmtudaginn 20. júní, frá kl. 09:00 til kl. 14:00, verður unnið við yfirlagnir á Vogatungu frá Tunguvegi að Vogatungu 2-24 (báðar akreinar). Hjáleiðir eru um Tunguveg og Kvíslartungu.
Athugið að þessi áætlun er háð veðri og getur því tekið breytingum.
Beðist er velvirðingar á þeim truflunum sem þessar framkvæmdir geta valdið. Vegfarendur eru beðnir um að sýna framkvæmdaraðilum tillitssemi.