Þriðjudaginn 18. júlí frá kl. 9:00 – 22:00 verður unnið við yfirlagnir á Reykjavegi milli Jónsteigs og út fyrir Völuteig.
Hjáleið verður um Skarhólabraut og/eða Hafravatnsveg.
Þessi áætlun er háð veðri og gæti því tekið breytingum.
Beðist er velvirðingar á þeim truflunum sem þessar framkvæmdir geta valdið. Vegfarendur eru beðnir að sýna framkvæmdaaðilum tillitssemi.
Mynd 1: Reykjavegur lokaður frá hringtorgi við Krikaskóla að Reykjalundavegi. Hjáleið um Skarhólabraut/Vesturlandsveg.
Mynd 2: Hjáleið að Völuteig fram hjá Völuteig 1.