Miðvikudaginn 21. ágúst frá kl. 09:00 til 14:00 verður unnið við malbiksyfirlagnir á Krikatorgi að hluta til. Hjáleiðir eru um norðurhluta Litlakrika og Stórakrika.
Athugið að þessi áætlun er veðurháð og getur því tekið breytingum. Beðist er velvirðingar á þeim truflunum sem þessar framkvæmdir geta valdið. Vegfarendur eru beðnir um að sýna framkvæmdaraðilum tillitssemi.
Tengt efni
Rampar í Mosfellsbæ orðnir 128 talsins
Römpum upp Ísland hefur unnið að því mikilvæga og þarfa verkefni í sumar að setja upp 42 nýja rampa við 10 opinberar stofnanir í Mosfellsbæ.
Endurnýjun hraðahindrana á Álafossvegi
Leikvöllurinn við Leirutanga í nýjum búning
Framkvæmdum við leikvöll við Leirutanga lauk í sumar.