Mánudaginn 17. júlí frá kl. 9:00 – 12:00 verður unnið við yfirlagnir á Áslandi milli Bæjaráss og Efstalands.
Þessi áætlun er háð veðri og gæti því tekið breytingum.
Beðist er velvirðingar á þeim truflunum sem þessar framkvæmdir geta valdið. Vegfarendur eru beðnir að sýna framkvæmdaaðilum tillitssemi.