Framkvæmdir við kantsteina og gangstéttar við Desjamýri og Flugumýri hefjast í byrjun næstu viku. Vinna er hafin við að tryggja greiða aðkomu að umræddum svæðum en aðgengi að lóðum verður tryggt á meðan framkvæmdir standa yfir. Umsjónaraðili með verkinu er Vargur ehf.
Mosfellsbær og verktakar þakka eigendum og lóðarhöfum fyrir góða samvinnu í tengslum við framkvæmdirnar. Eins og hefur komið fram eru eigendur þeirra ökutækja og búnaðar sem stendur utan lóða hvattir til að fjarlægja hann sem fyrst og um leið er minnt á að óheimilt er að geyma slíkt utan lóða.
Meðfylgjandi er mynd af framkvæmdasvæði og samþykktu deiliskipulagi af svæðinu.