Ráðgjafar á Velferðarsviði Mosfellsbæjar veita fólkinu aðstoð við að leita sér að heimili og aðstoða við samskipti við leigusala en leigusamningur er gerður beint við fólkið. Leigjendurnir geta fengið ábyrgðartryggingu. Ráðgjafar veita flóttafólki margvíslegan stuðning og aðhald fyrsta árið og heimsækja fólkið reglulega.
Ef þú veist um hentugt húsnæði til leigu til lengri eða skemmri tíma hvetjum við þig til að senda póst á: huldaruts@mos.is eða unadogg@mos.is.
Einnig er hægt að hafa samband í síma 525-6700.
Tengt efni
Styrkir til verkefna á sviði velferðarmála fyrir árið 2025
Skálatún verður Farsældartún
Mosfellsbær óskar eftir íbúðum eða herbergjum til leigu
Mosfellsbær auglýsir eftir íbúðum og/eða herbergjum fyrir flóttafólk til leigu, bæði fyrir einstaklinga og barnafjölskyldur.