Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 26. gr. laga nr. 73/1997 tillögu að breytingum á gildandi deiliskipulagi Leirvogstungu, síðast breyttu 24. júní 2009.
Meginefni breytinganna er að tveggja hæða raðhús með innbyggðum bílskúr á tveimur reitum við Vogatungu í norðausturhluta hverfisins, merktum A og C á tillöguuppdrætti, breytast í einnar hæðar raðhús með bílskýli fyrir framan. Íbúðum á reitunum fjölgar um fjórar og verða 36.
Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 1. hæð, frá 11. mars 2010 til og með 22. apríl 2010, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér hana og gert við hana athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og hafa borist skipulags- og byggingarnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, eigi síðar en 22. apríl 2010. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
5. mars 2010
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
Tengt efni
Grenndarkynning vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Engjaveg 22
Á fundi skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 11. maí sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu varðandi Engjaveg 22.
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við atvinnuhúsnæði að Flugumýri 6
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 3. maí 2023 sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, byggingarleyfisumsókn eigenda atvinnuhúsnæðis að Flugumýri 6, 0104.
Nýjar deiliskipulagsáætlanir - Frístundalóðir milli Selvatns og Nesjavallavegar
Mosfellsbær auglýsir nú skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eftirfarandi tillögur að deiliskipulagsáætlunum: