Fjögurra daga leikjanámskeið verður dagana 19. – 22. ágúst að Íþóttamiðstöðinni að Varmá í sumarlokin.
Dagskrá frá kl 09:00 til 16:00:
- Haninn galar = 09:00 til 10:00 (vaknað með morgunleik)
- Morgunkaffi = 10:00 til 10:30
- Ævintýri = 10:30 til 12:00 (farið út á vettvang eða í íþróttasal (fer eftir veðri)
- Hádegismatur = 12:00 til 13:00 í Íþróttamiðstöð
- Ævintýri = 13:00 til 15:00 (farið út á vettvang eða í íþróttasal (fer eftir veðri)
- Miðdegiskaffi = 15:00 til 15:30
- Lok dagsins = 15:30 til 16:00
Hlynur CG og Heiðdís CH verða með þetta námskeið og er leitast við að koma fram með nýjungar fyrir unga krakka til að læra og kynnast.
Námskeiðið kostar 7.000 kr. og 4.000 kr. fyrir hálfan dag.
Gerið ráð fyrir góðum fatnaði og auðvitað nesti til að stækka.
Tengt efni
Nóg um að vera í Mosfellsbæ í sumar
Opnað fyrir nýtingu frístundaávísana allt árið
Barnadjasshátíð í Mosfellsbæ 20. - 23. júní 2024
Dagana 20. – 23. júní verður hátíðin Barnadjass í Mosó haldin í annað sinn.