Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
31. júlí 2018

Aug­lýs­ing birt­ist þann 21. júlí síð­ast­lið­inn, en þar var rang­lega far­ið með aug­lýs­inga­tíma og at­huga­semd­ar­frest á til­lög­um að deili­skipu­lagi. Sam­kvæmt 1. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 skal til­laga að breyt­ingu vera til sýn­is eigi skemmri tíma en sex vik­ur og að­il­um gef­inn kost­ur á að gera at­huga­semd­ir við til­lögu inn­an sama frest frá birt­ingu aug­lýs­ing­ar. Aug­lýst­ur var ein­ung­is fimm vikna aug­lýs­ing­ar­tími og at­huga­semd­ar­frest­ur. Aug­lýs­inga­tími og at­hug­semda­frest­ur mun því vera fram­lengd­ur um rúma viku eða til og með 5. sept­em­ber 2018.Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 eft­ir­tald­ar til­lög­ur að breyt­ingu á deili­skipu­lagi:

Aug­lýs­ing birt­ist þann 21. júlí síð­ast­lið­inn, en þar var rang­lega far­ið með aug­lýs­inga­tíma og at­huga­semd­ar­frest á til­lög­um að deili­skipu­lagi. Sam­kvæmt 1. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 skal til­laga að breyt­ingu vera til sýn­is eigi skemmri tíma en sex vik­ur og að­il­um gef­inn kost­ur á að gera at­huga­semd­ir við til­lögu inn­an sama frest frá birt­ingu aug­lýs­ing­ar. Aug­lýst­ur var ein­ung­is fimm vikna aug­lýs­ing­ar­tími og at­huga­semd­ar­frest­ur. Aug­lýs­inga­tími og at­hug­semda­frest­ur mun því vera fram­lengd­ur um rúma viku eða til og með 5. sept­em­ber 2018.
Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 eft­ir­tald­ar til­lög­ur að breyt­ingu á deili­skipu­lagi:

Torg í Gerplustræti
Markmið með þess­ari breyt­ingu er að auð­velda um­ferð stærri bíla, t.d. al­menn­ings­vagna um torg­ið. Breyt­ing­in fel­ur í sér að radíus á beygj­um við enda torgs­ins eru rýmk­að­ir og á báð­um end­um torgs­ins verð­ur lág­ur kant­steinn sem af­mark­ar svæði sem eru yfir­keyr­an­leg fyr­ir stóra bíla.

Bjarg­slund­ur 6 og 8
Breyt­ing­in fel­ur í sér að í stað þess að lóð­irn­ar séu ein­býl­is­húsa­lóð­ir sé nú heim­ilt að byggja eitt par­hús á tveim hæð­um á hvorri lóð, með inn­byggð­um bíl­skúr­um. Heild­ar­stærð á hvoru húsi fari úr 300 m² í 500 m² en heim­ilt er að byggja minni hús. Að­koma verð­ur á efri hæð og há­marks­hæð þaks yfir kóta að­komu­hæð­ar er 3,7 m.

Bjarg­slund­ur 17
Breyt­ing­in fel­ur í sér stækk­un bygg­ing­ar­reits, stækk­un nú­ver­andi hús­næð­is og að byggja frístand­andi bíl­skúr með nýt­an­legu kjall­ara­rými. Heild­ar­fer­metr­ar húsa stækka úr 135 m² í 370 m². Nýt­ing­ar­hlut­fall lóð­ar fer úr 0.11 í 0.2.

Reykja­mel­ur 20-22 og Asp­ar­lund­ur 11
Breyt­ing­in varð­ar lóð­irn­ar Asp­arlund 11 og Reykja­mel 20 og 22, að í stað 200 m² íbúð­ar­húsa verði gert ráð fyr­ir einn­ar hæð­ar par­hús­um og bygg­ing­ar­reit­um breytt. Asp­ar­lund­ur 11 verð­ur að Asp­ar­lundi 11 og 13, Reykja­mel­ur 20 verð­ur að Reykja­mel 20A og 20B og Reykja­mel­ur 22 verð­ur að Reykja­mel 22A og 22B.

Það leið­rétt­ist hér með að til­lög­ur að breyt­ingu á deili­skipu­lagi verða til sýn­is í þjón­ustu­veri Mos­fells­bæj­ar Þver­holti 2, frá 21. júlí 2018 til og með 5. sept­em­ber en ekki til 25. ág­úst eins og sagt var í fyrri aug­lýs­ingu, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér hana og gert við hana at­huga­semd.
At­huga­semd­ir skulu vera skrif­leg­ar og skal senda þær til skipu­lags­nefnd­ar Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 270 Mos­fells­bæ, eða í tölvu­pósti til und­ir­rit­aðs eigi síð­ar en 5. sept­em­ber 2018.

31. júlí 2018,
Skipu­lags­full­trúi Mos­fells­bæj­ar

 

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00