Mosfellsbær auglýsir hér með til kynningar verkefnislýsingu skv. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010: Landbúnaðarsvæði við Hrísbrú í Mosfellsdal.
Mosfellsbær auglýsir hér með til kynningar verkefnislýsingu skv. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010:
Landbúnaðarsvæði við Hrísbrú í Mosfellsdal
Breytingin felst í að 10.6 ha. spildu úr landbúnaðarsvæði (205-L) er breytt í afþreyingar- og ferðamannasvæði (243-AF). Við það breytast einnig yfirlitstöflur landbúnaðarsvæða í kafla 4.14 og afþreyingar- og ferðamannasvæða í greinargerð aðalskipulags. Á svæðinu er fyrirhugað að reisa höfðingjasetur með skírskotun til íslenskrar miðaldamenningar.
Í verkefnalýsingu kemur lögum samkvæmt fram hvaða áherslur sveitarstjórn hefur við skipulagsgerðina og upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli, s.s. um kynningu og samráð gagnvart íbúum og öðrum hagsmunaaðilum. Þeir sem vilja kynna sér málið nánar vinsamlegast hafið samband við skipulagsfulltrúa.
Athugasemdum og ábendingum varðandi lýsinguna má skila til þjónustuversins eða til undirritaðs og er æskilegt að þær berist fyrir miðjan febrúar 2018.
20. janúar 2018
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar