Breyting á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030. Mosfellsbær auglýsir hér með til kynningar verkefnislýsingu, skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010: Frístundasvæði í suðurhluta Mosfellsbæjar.
Breyting á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030.
Mosfellsbær auglýsir hér með til kynningar verkefnislýsingu, skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:
Frístundasvæði í suðurhluta Mosfellsbæjar:
Breytingin felst í þéttingu núverandi frístundabyggðar. Um er að ræða 3 svæði í nágrenni við núverandi frístundabyggð vestan Dallands og norðan við Selvatn. Landnotkun breytist úr „Óbyggð svæði (Ó)” í „Svæði fyrir frístundabyggð (F)”. Við þetta breytast yfirlitstöflur í kafla 4.11. fyrir frístundabyggð í greinargerð aðalskipulagsins.
Í verkefnalýsingu kemur lögum samkvæmt fram hvaða áherslur sveitastjórn hefur við skipulagsgerðina, upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu sem og fyrirhugað skipulagsferli, s.s. kynningu og samráð gagnvart íbúum og öðrum hagsmunaaðilum. Þeir sem vilja kynna sér málið nánar vinsamlegast hafið samband við skipulagsfulltrúa.
Athugasemdum og ábendingum varðandi lýsinguna má skila til Þjónustuversins eða til undirritaðs fyrir 19. mars 2018.
23. febrúar 2018
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
Tengt efni
Grenndarkynning vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Engjaveg 22
Á fundi skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 11. maí sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu varðandi Engjaveg 22.
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við atvinnuhúsnæði að Flugumýri 6
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 3. maí 2023 sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, byggingarleyfisumsókn eigenda atvinnuhúsnæðis að Flugumýri 6, 0104.
Nýjar deiliskipulagsáætlanir - Frístundalóðir milli Selvatns og Nesjavallavegar
Mosfellsbær auglýsir nú skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eftirfarandi tillögur að deiliskipulagsáætlunum: