Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Kynn­ing á verk­efn­is­lýs­ingu: Að­al­skipu­lags­breyt­ing – vatns­geym­ir í aust­ur­hlíð­um Úlfars­fells sunn­an Skar­hóla­braut­ar.

Mos­fells­bær aug­lýs­ir hér með til kynn­ing­ar verk­efn­is­lýs­ingu skv. 30.gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010:

Mos­fells­bær áform­ar að reisa nýj­an vatns­geymi í aust­ur­hlíð­um Úlfars­fells suð­ur af Skar­hóla­braut. Geym­ir­inn mun þjón­usta fyr­ir­hug­aða byggð í Lága­felli en einn­ig auka þrýst­ing í Mýr­um og Krik­um en það hef­ur lág­ur þrýst­ing­ur vald­ið viss­um vanda­mál­um. Til þess að áform þessi gangi eft­ir þarf að skil­greina iðn­að­ar­lóð (I) á fyrr­greindu svæði sem í gild­andi að­al­skipu­lagi er skil­greint sem „Óbyggð svæði Ó/ÓB“.

Í verk­efna­lýs­ingu kem­ur lög­um sam­kvæmt fram hvaða áhersl­ur sveit­ar­stjórn hef­ur við skipu­lags­gerð­ina og upp­lýs­ing­ar um for­send­ur og fyr­ir­liggj­andi stefnu og fyr­ir­hug­að skipu­lags­ferli, s.s. um kynn­ingu og sam­ráð gagn­vart íbú­um og öðr­um hags­muna­að­il­um. Þeir sem vilja kynna sér mál­ið nán­ar vin­sam­leg­ast haf­ið sam­band við skipu­lags­full­trúa.Verk­efna­lýs­ing ligg­ur frammi í þjón­ustu­veri Mos­fells­bæj­ar á 2. hæð Þver­holts 2, 270 Mos­fells­bæ.

At­huga­semd­um og ábend­ing­um varð­andi lýs­ing­una má skila til þjón­ustu­vers­ins eða til und­ir­rit­aðs og er æski­legt að þær ber­ist fyr­ir lok mars 2017.

1. mars 2017
Skipu­lags­full­trúi Mos­fells­bæj­ar

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00