Mosfellsbær auglýsir hér með til kynningar deiliskipulagslýsingu, skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010: Fyrir gerð deiliskipulags sem nær yfir hluta íbúðasvæðis Helgafells sem afmarkast af byggð við Fellsás í vestur, Fellshlíð í austur, hlíðum Helgafells í norður og Gerplustræti/Bergrúnargötu í suður.
Kynning á deiliskipulagslýsingu: Deiliskipulag Helgafellshverfis, Helgafellstorfa
Mosfellsbær auglýsir hér með til kynningar deiliskipulagslýsingu, skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010: Fyrir gerð deiliskipulags sem nær yfir hluta íbúðasvæðis Helgafells sem afmarkast af byggð við Fellsás í vestur, Fellshlíð í austur, hlíðum Helgafells í norður og Gerplustræti/Bergrúnargötu í suður.
Megin viðfangsefni við deiliskipulagsgerðina er m.a. að móta byggð, skilgreina byggingareiti, setja fram skilmála fyrir hæðir húsa, landnotkun og nýtingarhlutfall, sem og gera grein fyrir aðkomu bíla, gangandi og hjólandi.
Í deiliskipulagslýsingu kemur lögum samkvæmt fram hvaða áherslur sveitarstjórn hefur við skipulagsgerðina og upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli, s.s. um kynningu og samráð gagnvart íbúum og öðrum hagsmunaaðilum. Þeir sem vilja kynna sér málið nánar vinsamlegast hafið samband við skipulagsfulltrúa.
Athugasemdum og ábendingum varðandi lýsinguna má skila til þjónustuversins eða til undirritaðs fyrir 15. febrúar 2018.
25. janúar 2018
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar