Mosfellsbær auglýsir hér með til kynningar deiliskipulagslýsingu, skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010: Fyrir gerð deiliskipulags sem nær yfir hluta athafnasvæðis í norðurhlíðum Úlfarsfells.
Mosfellsbær auglýsir hér með til kynningar deiliskipulagslýsingu, skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fyrir gerð deiliskipulags sem nær yfir hluta athafnasvæðis í norðurhlíðum Úlfarsfells. Svæðið afmarkast til vesturs af íbúðarbyggð, til norðurs af ódeiliskipulögðu íbúðarsvæði í landi Lágafells, 407-Íb, til austurs af athafnasvæði í Desjamýri og til suðurs af Skarhólabraut.
Megin viðfangsefni við deiliskipulagsgerðina er m.a. að deiliskipuleggja þegar byggt atvinnusvæði, skilgreina heimildir sem gilda um núverandi byggð á svæðinu, skilgreina byggingareiti og stækka lóðir til suðurs að Skarhólabraut.
Í deiliskipulagslýsingu kemur lögum samkvæmt fram hvaða áherslur sveitarstjórn hefur við skipulagsgerðina og upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli, s.s. um kynningu og samráð gagnvart íbúum og öðrum hagsmunaaðilum. Þeir sem vilja kynna sér málið nánar vinsamlegast hafið samband við skipulagsfulltrúa.
Athugasemdum og ábendingum varðandi lýsinguna má skila til þjónustuversins eða til undirritaðs fyrir 18. júlí 2018.
27. júní 2018
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
Tengt efni
Afnotareitir í Leirvogstunguhverfi samþykktir
Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann 8. júní 2023 að heimila leigu afnotareita í Leirvogstunguhverfi í samræmi við samþykkt skipulag.
Grenndarkynning vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Engjaveg 22
Á fundi skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 11. maí sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu varðandi Engjaveg 22.
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við atvinnuhúsnæði að Flugumýri 6
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 3. maí 2023 sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, byggingarleyfisumsókn eigenda atvinnuhúsnæðis að Flugumýri 6, 0104.