Dagurinn hófst með morgungöngu og endaði með málþingi í Listasalnum.
Gulrótin er lýðheilsuviðurkenning sem ætlað er að hampa einstaklingi, hópi, fyrirtæki eða stofnun fyrir brautryðjendastarf í þágu heilsueflingar og bættrar lýðheilsu íbúa Mosfellsbæjar. Það eru Heilsuvin og Mosfellsbær sem standa að baki viðurkenningunni sem felur í sér þakklæti fyrir frumkvæði og störf í anda lýðheilsu og á jafnframt að vera hvatning til allra á þessum vettvangi í bæjarfélaginu.
Þetta er í þriðja sinn sem viðurkenningin er veitt en hana hafa hlotið Svava Ýr Baldvinsdóttir íþróttakennari sem hefur m.a. séð um Íþróttaskóla barnanna hjá Aftureldingu í fjöldamörg ár og hjónin Guðjón Svansson og Vala Mörk hjá Kettlebells Iceland.
Í ár er það Kristín Einarsdóttir, íþróttakennari, sem hlýtur viðurkenninguna fyrir óendanlegan drifkraft og frumkvæði að aukinni hreyfingu barna og fullorðinna í gegnum kennsluaðferðina Leikur að læra og skokkhópinn Morgunfuglana.
Í rökstuðningi með tilnefningunni segir að hún hafi unnið ötullega að því að innleiða kennsluaðferðina Leikur að læra í leik- og grunnskóla á Íslandi. Aðferðin nýtir hreyfingu og leik markvisst í námi barnanna og miðar að því að efla líkamlega, andlega og félagslega vellíðan þeirra. Hún hefur síðustu ár haldið úti námskeiðum í aðferðinni fyrir kennara á Spáni og eru þeir ófáir kennarnir sem hafa nýtt sé þau. Ekki nóg með það heldur hefur hún einnig haldið úti hlaupahópnum Morgunfuglunum hér í Mosfellsbæ.
Tengt efni
Íþróttavika Evrópu 23. - 30. september 2022
Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin 23. – 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum.
Heilsa og hugur fyrir 60+ byrjar 12. september 2022
Mánudaginn 12. september byrjar námskeiðið Heilsa og hugur fyrir íbúa Mosfellsbæjar sem eru 60 ára og eldri.
Gleði, hreyfing og samvera á námskeiði hjá félagsstarfi aldraðra
Félagsstarf aldraðra býður upp á 6 vikna vor/sumar fjör sem stendur frá 25. apríl til 3. júní (3 vikur inni og 3 vikur úti).