Markmið Klörusjóðs er að stuðla að framþróun á skóla- og frístundastarfi í Mosfellsbæ.
Sjóðurinn er ætlaður til að styrkja verkefni sem unnin eru í einstökum skóla eða í samstarfi á milli skóla. Heildar framlag til sjóðsins árið 2021 eru tvær milljónir og í ár er áherslan lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Hægt er að sækja um í sjóðinn á þjónustugátt Mosfellsbæjar til 15. apríl. Samkvæmt reglum sjóðsins er úthlutað einu sinni á ári.
Sækja um:
Nafn sjóðsins er Klörusjóður, til heiðurs Klöru Klængsdóttur (1920-2011). Klara útskrifaðist frá Kennaraskóla Íslands árið 1939 og hóf sama ár kennslu við Brúarlandsskóla. Hún starfaði alla sína starfsævi sem kennari í Mosfellsbæ.
Tengt efni
Erna Sóley afreksíþróttamaður 2024
Nýsköpunarstyrkur Mosfellsbæjar afhentur í Hlégarði
Nýsköpunarstyrkur Mosfellsbæjar var afhentur í Hlégarði fimmtudaginn 27. júní.
Styrkir úr Klörusjóði afhentir 12. júní 2024
Miðvikudaginn 12. júní voru afhentir styrkir úr Klörusjóði en markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun og framþróun í skóla- og frístundastarfi í Mosfellsbæ.