Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
21. febrúar 2022

Ný­sköp­un­ar- og þró­un­ar­sjóð­ur skóla- og frí­stund­astarfs í Mos­fells­bæ.

Markmið Klöru­sjóðs er að stuðla að fram­þró­un á skóla- og frí­stund­astarfi í Mos­fells­bæ. Sjóð­ur­inn er ætl­að­ur til að styrkja verk­efni sem unn­in eru í ein­stök­um skóla eða í sam­starfi á milli skóla. Heild­ar fram­lag til sjóðs­ins árið 2022 eru tvær millj­ón­ir og í ár er áhersl­an lögð á um­hverf­is­fræðslu.

Hægt er að sækja um í sjóð­inn á þjón­ustugátt Mos­fells­bæj­ar til 15. apríl.

Sam­kvæmt regl­um sjóðs­ins er út­hlutað einu sinni á ári. All­ar upp­lýs­ing­ar um regl­ur Klöru­sjóðs má finna á vef Mos­fells­bæj­ar.

Nafn sjóðs­ins er Klöru­sjóð­ur, til heið­urs Klöru Klængs­dótt­ur (1920-2011). Klara út­skrif­að­ist frá Kenn­ara­skóla Ís­lands árið 1939 og hóf sama ár kennslu við Brú­ar­lands­skóla. Hún starf­aði alla sína starfsævi sem kenn­ari í Mos­fells­bæ.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00