Jólatrjáasala Skógræktarfélags Mosfellsbæjar er opin í Hamrahlíðinni við Vesturlandsveg til jóla.
Opnunartími er kl. 12-16 virka daga og kl. 10-16 um helgar. Hægt er að fara í skóginn og saga sjálf(ur) tré en einnig verða til söguð tré á staðnum.
Um helgar koma jólasveinar í skóginn kl. 14.
Til sölu eru:
- lifandi tré í pottum
- höggvin tré í öllum stærðum
- útlitsgölluð tré (veggtré)
- gjafabréf
Tengt efni
Tendrun jólatrés á Miðbæjartorgi vel sótt
Um árabil hefur tendrun ljósa á jólatrénu á Miðbæjartorgi markað upphaf jólahalds í Mosfellsbæ.
Vel heppnað Bókmenntahlaðborð
Húsfyllir á opnun jólalistaverkamarkaðar í Listasal Mosfellsbæjar