Lýðræðis- og mannréttindanefnd Mosfellsbæjar óskar eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar fyrir árið 2022.
Tilgangurinn er að veita viðurkenningu fyrir vel unnin störf að jafnréttismálum í samræmi við jafnréttisáætlun Mosfellsbæjar.
Til að eiga möguleika á að hljóta jafnréttisviðurkenningu Mosfellsbæjar árið 2022, þarf:
- Einstaklingur að hafa skarað framúr í vinnu að jafnréttismálum
- Fyrirtæki, stofnun eða félag að hafa:
a) Sérstaka stefnu eða áætlun í jafnréttismálum
b) Unnið í því að afnema staðalímyndir kynjanna
c) Sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að framgangi jafnréttis kvenna og karla
d) Gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundna eða kynferðislega áreitni á vinnustað
e) Veitt starfsmönnum fræðslu um jafnréttismál
Íbúar eru hvattir til að fara inn á þjónustugátt Mosfellsbæjar og senda tilnefningar ásamt rökstuðningi til og með 4. september 2022.
Útnefning lýðræðis- og mannréttindanefndar verður kynnt á Jafnréttisdegi Mosfellsbæjar, sem haldinn verður hátíðlegur í september.
Tengt efni
Tilnefningar til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2023
Velferðarnefnd auglýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2023.
Jafnréttisdagur Mosfellsbæjar 22. september 2022
Haldið upp á daginn í Hlégarði kl. 15:00 – 17:00.
Tilnefningar til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2022 þurfa að berast fyrir 5. september
Lýðræðis- og mannréttindanefnd Mosfellsbæjar óskar eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar fyrir árið 2022.