Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
10. júní 2015

Mos­fell­ing­ur­inn Íris Eva Ein­ars­dótt­ir vann til gull­verð­launa í loftriffil­keppni kvenna á Smá­þjóða­leik­un­um sem hóf­ust nú í vik­unni.

Íris Eva hlaut alls 200,1 stig og vann með 3,4 stiga mun. Tíu kon­ur hófu keppni í undanúr­slit­um og komust átta inn í úr­slit­in sem er í formi út­slátt­ar­keppni, en Íris var fjórða inn í úr­slit­in. Frá­bær ár­ang­ur hjá Ír­isi en hún varð fimmta á Smá­þjóða­leik­un­um árið 2013.

Íris Eva seg­ist alls ekki hafa átt von á gull­inu en hún hafði það markmið að kom­ast á verð­launap­all.

Íris ásamt Blossa, lukku­dýri leik­anna.

Ís­lend­ing­ar á toppi verð­launa­töfl­unn­ar á ný

Ís­lend­ing­ar eru efst­ir á verð­launa­töfl­unni eft­ir keppni á Smá­þjóða­leik­un­um 2015. Ís­land tryggði sér 115 verð­laun, þar af 38 gull, 46 silf­ur og 31 brons. Ís­lend­ing­ar voru sig­ur­sæl­ir á heima­velli og settu mörg Ís­lands­met og móts­met.

Smá­þjóða­leik­arn­ir 2015

Ný­af­staðn­ir Smá­þjóða­leik­ar 2015 eru þeir sextándu í sögu leik­anna en þeir fyrstu voru árið 1985 í San Marínó. Að þessu sinni fóru þeir fram á Ís­landi eins og áður sagði dag­ana 1. – 6. júní. Keppt var í ell­efu íþrótta­grein­um. Þær voru frjálsí­þrótt­ir, sund, júdó, skotí­þrótt­ir, tenn­is, borð­tenn­is, körfuknatt­leik­ur, blak, strand­blak, áhaldafim­leik­ar og golf.

Fim­leik­ar og golf eru val­grein­ar á leik­un­um 2015, en sú þjóð sem held­ur leik­ana get­ur val­ið tvær keppn­is­grein­ar. Það er í fyrsta skipti sem keppt var í golfi á Smá­þjóða­leik­um.

Þátt­töku­rétt á Smá­þjóða­leik­un­um eiga þjóð­ir með íbúa­tölu und­ir einni millj­ón. Þess­ar þjóð­ir eru: Andorra, Ís­land, Kýp­ur, Liechten­stein, Lúx­em­borg, Malta, Mónakó og San Marínó, og hafa þær ver­ið með allt frá byrj­un. Svart­fjalla­land tók þátt á leik­un­um árið 2011 í fyrsta sinn og eru því þátt­töku­þjóð­irn­ar nú níu tals­ins.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00