Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
1. mars 2024

Inn­rit­un í grunn­skóla Mos­fells­bæj­ar fyr­ir skóla­ár­ið 2024-2025 fer fram á Þjón­ustugátt Mos­fells­bæj­ar.

Inn­rit­un 6 ára barna sem hefja grunn­skóla­göngu haust­ið 2024 fer fram frá 1. mars til 22. mars.

Inn­rit­un skóla­skyldra barna og ung­linga sem flytjast til Mos­fells­bæj­ar skal vera lok­ið 1. apríl.

Um­sókn­ir barna og ung­linga með lög­heim­ili í Mos­fells­bæ, sem óska eft­ir að sækja grunn­skóla í öðr­um sveit­ar­fé­lög­um utan lög­heim­il­is, skulu berast á Þjón­ustugátt Mos­fells­bæj­ar fyr­ir 1. apríl.

Um­sókn­ir fyr­ir skóla­vist utan lög­heim­il­is end­ur­nýjast ekki sjálf­krafa. Mik­il­vægt er að um­sækj­end­ur kynni sér regl­ur um skóla­vist utan lög­heim­il­is á vef Mos­fells­bæj­ar.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar og að­stoð varð­andi inn­rit­un í grunn­skóla Mos­fells­bæj­ar veita skrif­stof­ur grunn­skól­ana. Þau sem óska eft­ir að­stoð og leið­bein­ing­um vegna Þjón­ustugátt­ar­inn­ar geta snú­ið sér til þjón­ustu­vers Mos­fells­bæj­ar.

Skrán­ing í vetr­ar­frístund vegna skóla­árs­ins 2024-2025 verð­ur aug­lýst sér­stak­lega síð­ar á heima­síð­um grunn­skól­anna.

– Fræðslu- og frí­stunda­svið Mos­fells­bæj­ar

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00