Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
3. mars 2023

Inn­rit­un í grunn­skóla Mos­fells­bæj­ar fyr­ir skóla­ár­ið 2023-2024 fer fram á þjón­ustugátt Mos­fells­bæj­ar.

Inn­rit­un 6 ára barna sem hefja grunn­skóla­göngu haust­ið 2023 fer fram frá 6. mars til 21. mars.

Skrán­ing í frístund og mötu­neyti 6 ára barna sem og nýrra nem­enda vegna skóla­árs­ins 2023-2024 verð­ur aug­lýst sér­stak­lega síð­ar.

Inn­rit­un skóla­skyldra barna og ung­linga sem flytjast til Mos­fells­bæj­ar skal vera lok­ið 1. apríl.

Skóla­vist utan lög­heim­il­is

Inn­rit­un barna og ung­linga með lög­heim­ili í Mos­fells­bæ, sem óska eft­ir að sækja grunn­skóla í öðr­um sveit­ar­fé­lög­um utan lög­heim­il­is, skulu berast á þjón­ustugátt Mos­fells­bæj­ar fyr­ir 1. apríl.

Um­sókn­ir fyr­ir skóla­vist utan lög­heim­il­is end­ur­nýjast ekki sjálf­krafa. Mik­il­vægt er að um­sækj­end­ur kynni sér regl­ur um skóla­vist utan lög­heim­il­is á vef Mos­fells­bæj­ar.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar og að­stoð varð­andi inn­rit­un í grunn­skóla Mos­fells­bæj­ar veita skrif­stof­ur grunn­skól­anna.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00