Mosfellsbær í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs efnir til opinnar hugmyndasamkeppni um nýjan miðbæjargarð, upplifunar- og áningarstað í miðbæ Mosfellsbæjar.
Mosfellsbær í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs efnir til opinnar hugmyndasamkeppni um nýjan miðbæjargarð, upplifunar- og áningarstað í miðbæ Mosfellsbæjar.
Tilgangurinn er að skapa spennandi svæði í miðbænum sem íbúar og gestir eiga greiðan aðgang að. Hugmyndafræði miðbæjargarðsins miðast út frá framtíðarsýn bæjarins sem fjölskylduvænt, heilsueflandi og framsækið bæjarfélag sem setur umhverfið í öndvegi og hefur þarfir og velferð íbúa að leiðarljósi.
Skilafrestur er til og með 21. mars 2022.
Samkeppnin er opin öllum, fagfólki, hönnuðum og arkitektum í samstarfi við aðra fræði- og faghópa og er sérstaklega hvatt til þverfaglegrar nálgunar.
Nánari upplýsingar:
Tengt efni
Þriggja ára plokkari
Steinar Þór Björnsson rúmlega þriggja ára plokkari og fyrirmyndar Mosfellingur hefur verið öflugur í að plokka með aðstoð pabba síns.
Dagur Norðurlandanna – 23. mars
Dagur Norðurlandanna er haldinn hátíðlegur vítt og breytt um öll Norðurlöndin í dag 23.mars.
Ljósin tendruð á jólatrénu á Miðbæjartorginu
Laugardaginn 26. nóvember voru ljósin tendruð á jólatré Mosfellinga við hátíðlega athöfn.