Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
22. febrúar 2018

Mos­fells­bær í sam­vinnu við Hönn­un­ar­mið­stöð Ís­lands efn­ir til sam­keppni um hönn­un á nýju að­komu­tákni/ein­kenni til að marka þær þrjár að­kom­ur að bæn­um.

Mos­fells­bær leit­ar eft­ir hug­mynd­um um nýtt að­komutákn sem sett verð­ur upp við að­komu­leið­ir inn í Mos­fells­bær. Að­komu­tákn­inu er ætlað að vekja at­hygli á Mos­fells­bæ og marka það svæði sem hon­um til­heyr­ir.

Leitað er að tákni fyr­ir bæ­inn sem er ætlað að marka að­komu­staði við bæj­ar­mörk en einn­ig að þema þess verði nýtt á marg­vís­leg­an hátt eins og við gerð list­muna, bréfs­efn­is, vef­síðu o.s.f.v.

Vinn­ings­hug­mynd­in verð­ur fram­kvæmd á þeim þrem­ur bæj­ar­mörk­um að Mos­fells­bæ, frá Reykja­vík, Þing­valla­vegi og Kjal­ar­nesi.

Í ág­úst sl. voru lið­in 30 frá því að Mos­fells­bær fékk kaup­stað­ar­rétt­indi. Ákveð­ið var af því til­efni að efna til þess­ar­ar hug­mynda­sam­keppni um að­komutákn og er stefnt að því að vígja vinn­ingstil­lög­una á 31. árs af­mæli bæj­ar­ins í ág­úst nk.

Fyrstu verð­laun eru sam­tals 2.000.000 króna og verða veitt fyr­ir þá til­lögu sem valin verð­ur í fyrsta sæti.

Á vef Hönn­un­ar­mið­stöðv­ar má finna nán­ari lýs­ingu og vís­un á vef­slóð­ir ásamt fróð­legu efni til inn­blásturs og upp­lýs­inga.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00