Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
9. apríl 2018

Minn­um á að skila­frest­ur er til há­deg­is þriðju­dag­inn 10. apríl 2018.

Mos­fells­bær leit­ar eft­ir hug­mynd­um um nýtt að­komutákn sem sett verð­ur upp við að­komu­leið­ir inn í Mos­fells­bær. Að­komu­tákn­inu er ætlað að vekja at­hygli á Mos­fells­bæ og marka það svæði sem hon­um til­heyr­ir.

Leitað er að tákni fyr­ir bæ­inn sem er ætlað að marka að­komu­staði við bæj­ar­mörk en einn­ig að þema þess verði nýtt á marg­vís­leg­an hátt eins og við gerð list­muna, bréfs­efn­is, vef­síðu o.s.f.v.

Í ág­úst 2017 eru lið­in 30 frá því að Mos­fells­bær fékk kaup­stað­ar­rétt­indi. Ákveð­ið var af því til­efni að efna til þess­ar­ar hug­mynda­sam­keppni um að­komutákn og er stefnt að því að vígja vinn­ingstil­lög­una á 31. árs af­mæli bæj­ar­ins í ág­úst nk.

Dóm­nefnd­ar­störf fara fram á bil­inu 11. – 24. apríl 2018.

Verð­launa­af­hend­ing fer fram 27. apríl 2018 um leið og sýn­ing á til­lög­um verð­ur opn­uð.

Fyrstu verð­laun eru sam­tals 2.000.000 króna og verða veitt fyr­ir þá til­lögu sem valin verð­ur í fyrsta sæti. Dóm­nefnd er þar að auki heim­ilt að veita sér­stak­ar við­ur­kenn­ing­ar.

Til­lög­um skal skila í lok­uðu um­slagi merktu dul­nefni í Hönn­un­ar­mið­stöð Ís­lands, Að­alstræti 2, 101 Reykja­vík.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00