Mosfellsbær auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagsbreytingu, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, í samræmi við samþykktir bæjarstjórnar.
Breytingin felur í sér að deiliskipulagsmörk deiliskipulags að Hlaðhömrum eru stækkuð utan um gatnamót Langatanga og Skeiðholts. Nýju hringtorgi er komið fyrir á gatnamótunum og gönguþveranir skilgreindar. Aðrir skilmálar eru óbreyttir.
Breytingin er auglýst í Mosfellingi og Lögbirtingarblaði. Uppdrættir er til sýnis á vef sveitarfélagsins, mos.is/skipulagsauglysingar, en einnig eru þeir aðgengilegir á Upplýsinga- og þjónustutorgi Mosfellsbæjar, Þverholti 2.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingar, þeir sem ekki gera slíkt teljast samþykkir þeim. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar og skal senda þær til skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, eða í tölvupósti á skipulag[hjá]mos.is.
Frestur til þess að gera athugasemdir er frá 8. október til og með 22. nóvember 2020.
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
Kristinn Pálsson
Tengt efni
Grenndarkynning vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Engjaveg 22
Á fundi skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 11. maí sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu varðandi Engjaveg 22.
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við atvinnuhúsnæði að Flugumýri 6
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 3. maí 2023 sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, byggingarleyfisumsókn eigenda atvinnuhúsnæðis að Flugumýri 6, 0104.
Nýjar deiliskipulagsáætlanir - Frístundalóðir milli Selvatns og Nesjavallavegar
Mosfellsbær auglýsir nú skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eftirfarandi tillögur að deiliskipulagsáætlunum: