Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
29. september 2014

Mos­fells­bær tek­ur þátt í Hreyfi­vik­unni sem Ung­menna­fé­lag Ís­lands stend­ur fyr­ir á Ís­landi dag­ana 29. sept­em­ber til 5. októ­ber.

Á vef Hreyfi­vik­unn­ar er að finna metn­að­ar­fulla dagskrá í fjölda sveit­ar­fé­laga um allt land. Í Mos­fells­bæ er mjög fjöl­breytt dagskrá fyr­ir flesta ald­urs­hópa í alls kyns hreyf­ingu eins og ketil­bjöll­um, boccia og hlaupa­stíls­nám­skeið. Mos­fells­bær býð­ur upp á sögu­göngu und­ir leið­sögn Bjarka Bjarna­son­ar á fimmtu­dag.

Á Ís­landi eru fjöl­marg­ir að­il­ar að skipu­leggja spenn­andi við­burði sem all­ir geta tek­ið þátt í og sótt. NowWeMove her­ferð­in er skipu­lögð af ISCA í sam­starfi við Evr­ópu sam­tök hjól­reiða­manna (ECF) og yfir 250 frjáls­fé­laga­sam­tök um alla Evr­ópu.

Hreyfi­vik­an er hald­in um gjörv­alla Evr­ópu í fyrstu viku októ­ber­mán­að­ar. Hreyfi­vik­an er hluti af NowWeMOVE her­ferð­inni. Markmið UMFÍ með Hreyfi­vik­unni er að kynna kosti þess að taka virk­an þátt í íþrótt­um og hreyf­ingu til heilsu­bót­ar.

Mik­ill fjöldi sam­taka um all­an heim, fyr­ir­tæki og ein­stak­ling­ar leggja sitt að mörk­um við að skipu­leggja við­burði, kynna það starf sem þeg­ar er til stað­ar og smita frá sér já­kvætt hug­ar­f­ar tengt hreyf­ingu í Hreyfi­vik­unni.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00