Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
14. maí 2024

Vegna mik­ill­ar þátt­töku hef­ur ver­ið ákveð­ið að fram­lengja hreins­un­ar­átak­ið í Mos­fells­bæ og verða því gám­ar fyr­ir garða­úrg­ang að­gengi­leg­ir íbú­um til 20. maí 2024.

Stað­setn­ing­ar gámanna eru sem hér seg­ir:

  • Holta- og Tanga­hverfi: Neð­an Þver­holts (milli Ak­ur­holts og Arn­ar­tanga)
  • Höfða og Hlíða­hverfi: Grennd­ar­stöð við Bo­ga­tanga
  • Teiga- og Reykja­hverfi: Skar­hóla­braut ofan Reykja­veg­ar og við Sunnukrika
  • Hlíð­ar­túns­hverfi: Við Að­altún
  • Helga­fells­hverfi: Efst í Brekkulandi og við Snæfríð­ar­götu
  • Leir­vogstunga: Á stæði við stoppistöð á Tungu­vegi
  • Mos­fells­dal­ur: Á bíla­stæði við Þing­valla­veg

Helg­ina 17. – 20. maí verð­ur ráð­ist í hreins­un­ar­átak á opn­um svæð­um bæj­ar­ins og með­fram ný­bygg­ing­ar­svæð­um. Aft­ur­eld­ing og skáta­fé­lag­ið Mosverj­ar munu að venju að­stoða við hreins­un­ina og taka vel til hend­inni.

All­ir íbú­ar Mos­fells­bæj­ar eru hvatt­ir til að taka þátt í hreins­un­ar­átaki Mos­fells­bæj­ar og hjálp­ast að við að gera bæ­inn fal­leg­an og snyrti­leg­an fyr­ir sum­ar­ið.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-12:00