Dagana 15. – 30. apríl verður hreinsunarátak í Mosfellsbæ enda vorið á næsta leiti.
Á því tímabili eru íbúar Mosfellsbæjar hvattir til að huga að umhverfinu og hreinsa í kringum hús sín og næsta umhverfi.
Hreinsun gróðurs og lóða
Meðan á hreinsunarátakinu stendur er gott tækifæri fyrir íbúa að taka til hendinni í garðinum og snyrta runna og beð og eru þeir sérstaklega hvattir til að klippa hekk og tré sem ná yfir gangstéttar og stíga.
Gámar fyrir garðaúrgang verða aðgengilegir á þessu tímabili í hverfum bæjarins á eftirtöldum stöðum:
- Holta- og Tangahverfi – Neðan Þverholts (milli Akurholts og Arnartanga)
- Höfða og Hlíðahverfi – Vörubílastæði við Bogatanga
- Teiga- og Reykjahverfi – Skarhólabraut ofan Reykjavegar og við Sunnukrika
- Hlíðartúnshverfi – Við Aðaltún
- Helgafellshverfi – Efst í Brekkulandi og við Snæfríðargötu
- Leirvogstunga – Á stæði við stoppistöð á Tunguvegi
- Mosfellsdalur – Á bílastæði við Þingvallaveg
Gatna- og stígahreinsun
Á þessu tímabili mun einnig fara fram þvottur og sópun gangstétta og gatna bæjarins. Í fyrstu verða stofngötur og stígar ásamt stofnanaplönum sópuð og í framhaldi verður farið inn í hverfi bæjarins og verða merkingar settar á áberandi staði áður en sú vinna hefst. Til að þetta verði sem best gert þurfum við á aðstoð íbúa að halda með því að leggja ekki ökutækjum eða öðrum farartækjum á götum eða gangstéttum meðan á hreinsun stendur.
Eftirtalda daga verða gatnahreinsunarmenn að störfum í hverfunum:
- 17. apríl verða gangstéttar og götur þvegnar og sópaðar í Reykja og Krikahverfi
- 18. apríl verða gangstéttar og götur þvegnar og sópaðar í Teiga og Helgafellshverfi.
- 19. apríl verða gangstéttar og götur þvegnar og sópaðar í Holtahverfi.
- 21. apríl verða gangstéttar og götur þvegnar og sópaðar í Tangahverfi.
- 24. apríl verða gangstéttar og götur þvegnar og sópaðar í Hlíða og Hlíðartúnshverfi.
- 25. apríl verða gangstéttar og götur þvegnar og sópaðar í Höfðahverfi.
- 26. apríl verða gangstéttar og götur þvegnar og sópaðar í Leirvogstunguhverfi.
Hreinsunardagar á opnum svæðum 21. – 23. apríl
Helgina 21. – 23. apríl verður ráðist í hreinsunarátak á opnum svæðum bæjarins og meðfram nýbyggingarsvæðum. Afturelding og skátafélagið Mosverjar munu að venju aðstoða við hreinsunina og taka vel til hendinni.
Allir íbúar Mosfellsbæjar eru hvattir til að taka þátt í hreinsunarátaki Mosfellsbæjar og hjálpast að við að gera bæinn fallegan og snyrtilegan fyrir sumarið.
– Umhverfissvið Mosfellsbæjar
Tengt efni
Hreinsunarátak framlengt
Hreinsunarátak í Mosfellsbæ 8. - 14. maí 2024
Dagana 8. – 14. maí verður hreinsunarátak í Mosfellsbæ.
Duglegir krakkar úr Krikaskóla tóku þátt í Hreinsunarátaki Mosfellsbæjar 2021
Krakkar úr Krikaskóla létu sitt ekki eftir liggja í Hreinsunarátaki í Mosfellsbæ þegar þau tíndu rusl í Meltúnsreitnum við Völuteig í vikunni.