Vakin er athygli á því að frestur til að gera athugasemdir við tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi hesthúsa- og hestaíþróttasvæðis á Varmárbökkum rennur út þriðjudaginn 24. nóvember n.k.
Tillagan er til sýnis á bæjarskrifstofunni í Kjarna.
Upplýsingar um skipulagið eru veittar hjá skipulagsfulltrúa í viðtalstímum alla virka daga kl. 11-12. Einnig verða skipulagsfulltrúi og formaður skipulagsnefndar til viðtals vegna skipulagsins fimmtudaginn 19. nóvember kl. 17-18 á bæjarskrifstofunni á 2. hæð í Kjarna.