Tillögur að breytingum við Efstaland (2. áf.) og Uglu- og Sölkugötu (3. áf.). Tillögurnar snúast um það að breyta einbýlislóðum í lóðir fyrir par- eða raðhús, auk nokkurra breytinga á götum og almennum bílastæðum. Athugasemdafrestur er til 16. apríl 2014.
Mosfellsbær auglýsir hér með samkvæmt 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eina tillögu að breytingum á deiliskipulagi 2. áfanga Helgafellshverfis (samþ. 13.12.2006) og tvær tillögur að breytingum á deiliskipulagi 3. áfanga hverfisins (samþ. 11.04.2007). Tillögurnar eru sem hér segir:
Breytingar við Efstaland, í 2. áfanga.
Fimm lóðir fyrir tveggja hæða einbýlishús ofan/norðan Efstalands (nr. 2-10) breytist í níu lóðir fyrir raðhús, tveggja hæða með einnar hæðar bílskúrum á milli. Raðhúsin verði í tveimur samstæðum, 4 og 5 saman. Bílastæði langsum við götu færist suður yfir götuna.Breytingar við Uglugötu, í 3. áfanga
Sjö lóðir fyrir einnar hæðar einbýlishús norðan/austan Uglugötu (nr. 15-27) breytist í lóðir fyrir 10 einnar hæðar parhús (5 „pör“).Breytingar við Sölkugötu, í 3. áfanga.
Fimm lóðir fyrir einnar- og tveggja hæða einbýlishús norðan/austan Uglugötu (nr. 16-22) breytist í sjö lóðir fyrir raðhús, tveggja hæða með einnar hæðar bílskúrum á milli. Raðhúsin verði í tveimur samstæðum, 3 og 4 saman. Jafnframt verði Sölkugata opnuð norður í safngötu í stað þess að enda sem botnlangi og almennum bílastæðum (gestastæðum) við Sölkugötu og safngötuna fjölgað.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, eigi síðar en 16. apríl 2014.
3. mars 2014,
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
Tengt efni
Grenndarkynning vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Engjaveg 22
Á fundi skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 11. maí sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu varðandi Engjaveg 22.
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við atvinnuhúsnæði að Flugumýri 6
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 3. maí 2023 sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, byggingarleyfisumsókn eigenda atvinnuhúsnæðis að Flugumýri 6, 0104.
Nýjar deiliskipulagsáætlanir - Frístundalóðir milli Selvatns og Nesjavallavegar
Mosfellsbær auglýsir nú skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eftirfarandi tillögur að deiliskipulagsáætlunum: