Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Mos­fells­bær stend­ur í fjórða sinn fyr­ir heilsu­viku í Mos­fells­bæ að vori og verð­ur heilsu­vik­an í ár hald­in dag­ana 9. – 14 maí.

Mark­mið­ið er að efla heilsu Mos­fell­inga og vekja at­hygli á heil­brigðu líferni.

Fjöl­breytt dagskrá verð­ur í gangi alla vik­una. Með­al ann­ars verð­ur í gangi fella­þrenn­an svo­kall­aða, þar sem fólk er hvatt til að fara á þrjú fell í um­hverfi Mos­fells­bæj­ar og taka þátt í keppni um skemmti­lega vinn­inga. Yngstu börn­un­um (yngri en sex ára) gefst tæki­færi til að taka þátt í fella­keppn­inni með því að klífa Lága­fell­ið.

Veit­inga­stað­ir í bæn­um leggja áherslu á heilsu­rétti í heilsu­vik­unni.

Heilsu­vik­unni lýk­ur með heilsu­há­tíð fjöl­skyld­unn­ar á Varmár­svæð­inu laug­ar­dag­inn 14. maí kl. 11-14.  Þar gefst ein­stak­ling­um og fyr­ir­tækj­um í heilsu­tengdri þjón­ustu í Mos­fells­bæ að kynna starf­semi sína og jafn­vel bjóða heilsu­tengd­an varn­ing til sölu.

Að venju verð­ur fjöl­skyldu­hlaup­ið fyr­ir alla ald­urs­hópa en nú verð­ur einn­ig boð­ið upp á göngu fyr­ir eldri borg­ara und­ir leið­sögn.

Fjöl­breytt fræðslu­er­indi tengd heilsu og hreyf­ingu verða á dag­skránni og ótalmargt ann­að skemmti­legt og fræð­andi.

Dag­skrá­in að Varmá laug­ar­dag­inn 14. maí kl. 11-14

  • 11.00 Sölu- og kynn­ing­ar­bás­ar opna
  • 11.00  Fræðslu­er­indi: Hreyf­ing fyr­ir eldri borg­ara
  • 11.15  Heilsu­ganga eldri borg­ara und­ir leið­sögn
  • 11.15  Fræðslu­er­indi: Hvern­ig byrja ég að hlaupa?
  • 11.45  Hlát­ur­jóga fyr­ir alla fjöl­skyld­una
  • 12.00  Leik­skóla­hlaup­ið – öll börn fá verð­launa­pen­ing
  • 12.00  Fræðslu­er­indi: Mataræð­ið og geð­heils­an
  • 12.30  Heilsu­hlaup­ið (3 eða 5km)
  • 13:30  Verð­launa­af­hend­ing vegna fjalla­þrennu

Fella­þrenna:
Gakktu á þrjú fell í ná­grenni Mos­fells­bæj­ar: Helga­fell, Úlfars­fell og Reykja­borg­ina. Á toppi þeirra er að finna miða sem þú skrif­ar nafn og dag­setn­ingu á og skil­ar inn í íþróttamið­stöð­ina að Varmá fyr­ir 14. maí. Þá gefst þér tæki­færi til að vinna frá­bæra vinn­inga.

Með­al verð­launa:

  1. verð­laun – Boð­skort í bað­stofu í Wor­ld Class, Laug­um fyr­ir tvo, mán­að­ar­kort í heilsurækt í Wor­ld Class, 10.000 króna gjafa­kort frá Mos­fells­baka­ríi
  2. verð­laun – Boð­skort í bað­stofu í Wor­ld Class, Laug­um fyr­ir tvo, 5.000 króna gjafa­kort frá Mos­fells­baka­ríi
  3. verð­laun – Boð­skort í bað­stofu í Wor­ld Class, Laug­um fyr­ir tvo, 3.000 króna gjafa­kort frá Mos­fells­baka­ríi

Sér­stök auka­verð­laun:

  • Su­mar­kort í lík­ams­rækt í Eld­ingu að Varmá
  • Heilsup­izzu­veisla fyr­ir fjóra frá Pizza bræðr­um
  • Heilsu­veisla fyr­ir tvo á Kaffi­hús­inu á Ála­fossi
  • Auk þess fleiri auka­verð­laun

Börn á leik­skóla­aldri geta geng­ið á Lága­fell og tek­ið miða þar og skilað inn í Varmá og far­ið í pott þar sem dregn­ir verða út sér­stak­ir vinn­ing­ar fyr­ir börn.

At­hug­ið: Ef vinn­ings­hafi er ekki á staðn­um þeg­ar verð­launa­af­hend­ing fer fram, laug­ar­dag­inn 14. maí kl. 13.30 að Varmá, verð­ur dreg­inn nýr vinn­ings­hafi.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00