Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
13. júní 2023

Á fundi Skipu­lags­nefnd­ar Mos­fells­bæj­ar þann 11. maí sl. var sam­þykkt að grennd­arkynna í sam­ræmi við 2. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010, til­lögu að breyt­ingu á deili­skipu­lagi, Óskots­veg­ar 12 og 14.

Breyt­ing­in fel­ur í sér aukn­ingu á bygg­ing­ar­magni tveggja lóða úr 70,0 m² í 90,0 m², sem þá verð­ur há­marks fer­metra­fjöldi á lóð fyr­ir frí­stunda­hús með eða án geymslu eða gesta­húss.

Deili­skipu­lag­ið var upp­haf­lega sam­þykkt þann 11.08.2005, skipu­lagsnr. 6728.

Í þessu til­viki er um að ræða óveru­lega breyt­ingu á deili­skipu­lagi, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga. Hér með er gef­inn kost­ur á að koma at­huga­semd­um eða ábend­ing­um á fram­færi vegna þeirra fram­kvæmda sem sótt hef­ur ver­ið um. At­huga­semd­ir skulu vera skrif­leg­ar, ásamt helstu upp­lýs­ing­um um send­anda og merkt­ar skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 270 Mos­fells­bæ. Einn­ig má senda at­huga­semd­ir í tölvu­pósti á skipu­lag[hja]mos.is.

Frest­ur til að skila inn at­huga­semd­um/ábend­ing­um er til og með 13. júlí 2023.

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00