Á fundi Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 18. febrúar sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, umsókn eigenda Kvíslartungu 134 um breytingu á deiliskipulagi.
Breytingin felur í sér að byggingareitur á lóð 134 við Kvíslartungu verði færður til um 3 m til suðvesturs, til að skapa meiri rýmd norðaustan til á lóðinni.
Meðfylgjandi er tillöguuppdráttur sem sýnir framangreindar breytingar.
Um að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Hér með er gefinn kostur á að koma athugasemdum eða ábendingum á framfæri vegna breytinganna sem sótt hefur verið um. Athugasemdir skulu vera skriflegar, ásamt helstu upplýsingum um sendanda, og merktar skipulagsnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ. Einnig má senda athugasemdir í tölvupósti á skipulag[hja]mos.is.
Frestur til að skila inn athugasemdum/ábendingum er til og með 30. mars nk.
Tengt efni
Grenndarkynning vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Engjaveg 22
Á fundi skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 11. maí sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu varðandi Engjaveg 22.
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við atvinnuhúsnæði að Flugumýri 6
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 3. maí 2023 sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, byggingarleyfisumsókn eigenda atvinnuhúsnæðis að Flugumýri 6, 0104.
Nýjar deiliskipulagsáætlanir - Frístundalóðir milli Selvatns og Nesjavallavegar
Mosfellsbær auglýsir nú skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eftirfarandi tillögur að deiliskipulagsáætlunum: