Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
9. júlí 2021

Á fundi Skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar þann 1. júlí sl. var sam­þykkt að grennd­arkynna í sam­ræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010, vegna til­lögu að breyt­ingu á deili­skipu­lagi Þing­vall­ar­veg­ar sem sam­þykkt var 14.11.2019, vegna nýrra lóð­ar fyr­ir dreif­istöð.

Lóð­in er 54 m2 og stað­sett vest­an við fyr­ir­hug­að bíla­stæði og að­komu rútu­bíla við Lax­nessafn­ið á Gljúfra­steini.

Í þessu til­viki er um að ræða óveru­lega breyt­ingu á deili­skipu­lagi, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga. Hér með er gef­inn kost­ur á að koma at­huga­semd­um eða ábend­ing­um á fram­færi vegna þeirra fram­kvæmda sem sótt hef­ur ver­ið um. At­huga­semd­ir skulu vera skrif­leg­ar, ásamt helstu upp­lýs­ing­um um send­anda, og merkt­ar skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar, Þver­holti 2, 270 Mos­fells­bæ. Einn­ig má senda at­huga­semd­ir í tölvu­pósti á skipu­lag[hja]mos.is.

Frest­ur til að skila inn at­huga­semd­um/ábend­ing­um er rúm­lega 4 vik­ur frá dag­setn­ingu frétt­ar­inn­ar, þ.e. til og með 10. ág­úst nk.

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00