Grenndarkynning vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í landi Akralands vegna lóðanna Réttahvol 11, 13 og 15.
Lóðamörkum er breytt og lóðin nr. 13 skipt upp í tvær lóðir.
Á fundi Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar þann 13 ágúst sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna tillögu að breytingu á Deiliskipulagi í landi Akra sem samþykkt var í bæjarstjórn Mosfellsbæjar þann 2. september 1998.
Breytingin felst í að lóðinni nr. 13 við Reykjahvol er skipt upp í tvær lóðir og lóðarmörkum á Reykjahvoli nr. 11 og 13 breytast. Meðfylgjandi er tillöguuppdráttur sem sýnir framangreindar breytingar.
Í þessu tilviki er um að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Hér með er gefinn kostur á að koma athugasemdum eða ábendingum á framfæri vegna þeirra framkvæmda sem sótt hefur verið um. Athugasemdir skulu vera skriflegar, ásamt helstu upplýsingum um sendanda, og merktar skipulagsnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ. Einnig má senda athugasemdir í tölvupósti á skipulag[hja]mos.is.
Frestur til að skila inn athugasemdum/ábendingum er til og með 22. sepember nk.
Tengt efni
Afnotareitir í Leirvogstunguhverfi samþykktir
Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann 8. júní 2023 að heimila leigu afnotareita í Leirvogstunguhverfi í samræmi við samþykkt skipulag.
Grenndarkynning vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Engjaveg 22
Á fundi skipulagsnefndar Mosfellsbæjar þann 11. maí sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu varðandi Engjaveg 22.
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við atvinnuhúsnæði að Flugumýri 6
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 3. maí 2023 sl. var samþykkt að grenndarkynna í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, byggingarleyfisumsókn eigenda atvinnuhúsnæðis að Flugumýri 6, 0104.